Fasteignasalan Heimaland kynnir Enjavík 11, 800 Selfossi.Um er að ræða fjögurra herbergja raðhús í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með báruáli og sléttri álklæðningu en bárujárn er á þaki. Lóð er frágengin, þökulögð, mulning í bílaplani og steyptu þriggja tunnu ruslatunnuskýli.
Nánari lýsing eignar:
Húsið er samtals 161,7 fm. og bílskúr 30,9 fm. þar af samkvæmt fasteignamati. Húsið er fullbúið og tilbúið til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin telur:
Forstofu með flísum á gólfi og rúmgóðum fataskápum, alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhús, í eldhúsi er rúmgóð innrétting með vandaðri borðplötu og Samsung eldhústækjum. þrjú svefnherbergi eru í húsinu öll með fataskápum, baðherbergi og gestasalerni eru flísalögð með innréttingum, þvottahús er með innréttingu og flísum á gólfum. Bílskúr er fullfrágenginn með epoxy á gólfi.
Hér er um að ræða virkilega smekklega, eign og vel skipulagt raðhús sem er staðsett í göngufæri við nýjasta grunnskóla bæjarins.
ATH. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, [email protected]
Guðný Guðmundsdóttir löggiltur fasteigna og skipasali, sími 821-6610, [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.
www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.