Grundarland 10, 800 Selfoss
90.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
153 m2
90.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
77.900.000
Fasteignamat
81.850.000

Fasteignasalan Heimaland kynnir 153,8 fm 4ra herbergja parhús að Grundarlandi 10 á Selfossi sem er snyrtilegt, vel frá gengið parhús í einu af vinsælustu hverfum Selfossbæjar. Klætt að utna með viðhaldsléttu báruáli og bárujárni á þaki, stórri steyptri innkeyrslu með snjóbræðslu. Húsið er staðsett í göngufæri við nýjasta leikskóla bæjarins, Goðheima og grunnskólan Sunnulækjarskóli. Hér er um að ræða áhugaverða, snyrtilega og vel skipulagða eign sem vert er að skoða nánar. 

Nánari lýsing eignar:  
Íbúðin telur samkvæmt teikningu:
Forstofu er með harðparketi á gólfi og fataskáp. 
Alrými samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi.
Eldhús er með rúmgóðri innréttingu, tvöföldum innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél, harðparket er á gólfum.
Svefnherbergin eru þrjú, tvö þeirra eru með fataskápum, harðparket á gólfum
Baðherbergi er rúmgott með flísum á gólfi, gólfsturtu og er útgangur þaðan á baklóð.
Þvottahúsið er vel skipulagt með þvottavél og þurkara í vinnuhæð í skápagóðri innréttingu einnig skolvaski og fellanlegum borðum til þvotta frágangs. Í þvottahúsi er stigalúga upp á geymsluloft.
Bílskúr er rúmgóður með innréttingu og epoxy á gólfi. 
Húsið er skráð 153,8 fermetrar timburhús samkvæmt fasteignamati og bílskúr er 34,9 fermetrar þar af.
Lóðin er þökulögð fyrir utan það svæði sem ætlað er fyrir sólpall, innkeyrsla er steypt með snjóbræðslu.
 

Nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, [email protected]
Guðný Guðmundsdóttir, löggiltur fasteignasali og skipasali, síma 821-6610, [email protected].


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.