Aðalvík 1, 800 Selfoss
89.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
4 herb.
155 m2
89.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
83.050.000

Fasteignasalan Heimaland kynnir Aðalvík 1, 800 Selfossi.

Um er að ræða fjögurra herbergja parhús í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með bárujárni og bárujárn er á þaki. Lóð er þökulögð, mulning í bílaplani og steypt þriggja tunnu sorptunnuskýli.
Nánari lýsing eignar:
Húsið er skráð 155,0 fermetrar samkvæmt fasteignamati og bílskúr er 31,9 fermetrar þar af. Húsið er fullbúið og tilbúið til afhendingar við kaupsamning.
Íbúðin telur samkvæmt teikningu:
Flísalagða forstofu með fataskáp og fatahengi, alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhús, rúmgóð innrétting með eyju, harðparket á gólfum. þrjú svefnherbergi eru í húsinu öll með harðparketi á gólfum og fataskápum, baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, innbyggð sturtutæki og upphengt salerni, rúmgóð innrétting með speglaskápum, þvottahús er flísalagt með rúmgóðri innréttingu, bílskúr er rúmgóður með epoxy á gólfi.

Hér er um að ræða vel skipulagt og vandað parhús sem er staðsett í göngufæri við nýjasta grunnskóla bæjarins, áhugaverð eign sem vert er að skoða nánar.

Upplýsingar um skoðun og allar nánari upplýsingar veitir:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is,  Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.