Boðavík 3, 800 Selfoss
107.900.000 Kr.
Parhús/ Parhús á einni hæð
5 herb.
186 m2
107.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
93.750.000

Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu Boðavík 3, 800 Selfossi.
Vel skipulagt, 186,3 fermetra, snyrtilegt og vandað parhús, staðsett í Svokölluðu Jórvíkurhverfi á Selfossi.
Nýjasti grunnskóli bæjarins, Stekkjaskóli er í nokkurra mínútna göngufæri við eignina.


Um er að ræða nýtt fimm herbergja parhús þar sem vandað hefur verið til verka og er eignin öll hin snyrtilegasta. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með viðhaldsléttri Bond álklæðningu og litað bárujárn er á þaki.
Lóðin er frágengin, þökulögð með mulning í bílaplani og steyptu 3. tunnu ruslatunnuskýli.
Húsið er skráð 186,3 fermetrar og bílskúr er 33,3 fermetrar þar af samkvæmt fasteignamati.

Íbúðin telur:
Forstofu er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskápum.
Gestasalerni með flísum á gólfi og veggjum, rúmgóð gólf sturta, upphengt salerni og innrétting.
Alrýmið samanstendur af rúmgóðri stofu, borðstofu og eldhúsi með eyju, Harðparket á gólfum.
Eldhúsið er með rúmgóðri sprautulakkaðri innréttingu, innfeld uppþvottavél, span helluborð, rúmgóð eyja.
Fjögur rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu öll með fataskápum og harðparketi á gólfum.
Baðherbergið er rúmgott með innréttingu, upphengdu salerni, gólf sturtu og frístandandi baðkari, flísar á gólfi og veggjum.
Þvottahús er rúmgott með innréttingu þar sem þvottavél og þurrkara er komið fyrir í þægilegri vinnuhæð, harðparket á gólfi.
Bílskúr er rúmgóður með epoxy á gólfi, rúmgóðir skápar eru í bílskúr en í enda hans er búið að koma fyrir sjónvarpsholi.

Hér er um að ræða vel skipulagða, snyrtilega og spennandi eign sem vert er að skoða nánar.

Nánari upplýsingar veitir:
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, [email protected]


Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

Fasteignasalan Heimaland ehf. Austurvegur 6, 800 Selfoss, www.heimaland.is

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.