Boðavík 11, 800 Selfoss
89.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
161 m2
89.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
79.450.000
Fasteignamat
88.600.000

Fasteignasalan Heimaland kynnir Boðavík 11, 800 Selfossi.

Boðavík 11 er nýtt og vel skipulagt 161,7 fm. fjögurra herbergja raðhús ásamt bílskúr en bílskúr er 30,9 fm. þar af samkvæmt fasteignamati. Húsið er staðsett í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar, Jórvíkurhverfi. Lóðin er þökulögð en mulningur er í bílaplani og á suðurlóð þar sem gert er ráð fyrir sólpalli og ídráttarrör hafa verið lögð fyrir heitum potti. Steypt 3. tunnu ruslaskýli fylgir.

Eignin er fullbúin og lokaúttekt hefur farið fram. Húsið er timburhús, klætt að utan með bárujárni og sléttri ál klæðningu, gluggar eru ál/tré gluggar, vindskeiðar og undirklæðning úr málaðri furu. Gólfhiti er í húsinu, steyptur í plötu, veggir og loft klædd með gipsi, heilspartlað og málað. Harðparket er á gólfum en flísar á votrýmum, innihurðar eru yfirfelldar hvítar. 

Nánari lýsing eignar:   
Eignin telur Anddyri með flísum á gólfi og fataskáp. Gestasnyrtingu með flísum á gólfi, innréttingu og upphengdu salerni, þrjú svefnherbergi eru í húsinu öll með fataskápum og harðparketi á gólfi, stofu, eldhús, sjónvarpshol eru í rúmgóðu alrými með harðparket á gólfi, eldhúsinnrétting er rúmgóð með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél, bakaraofn er í þægilegri vinnuhæð og span helluborð, baðherbergi er rúmgott með gólfsturtu, upphengdu salerni innréttingu og flísum á gólfi, þvottahús er rúmgott með innréttingu og flísum á á gólfi, bílskúr er rúmgóður og innangengt er úr bílskúr inn í íbúðina.                     
Allar nánari upplýsingar veitir
Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali, sími 897-7027, [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá. 

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun. 

www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.