Fasteignasalan Heimaland kynnir Björkustekk 6, 800 Selfossi í einkasölu.Um er að ræða fimm herbergja parhús á frábærum stað rétt við nýjan grunnskóla í einu af nýjustu hverfum Selfossbæjar. Húsið er byggt úr timbri og klætt að utan með báruáli og bárujárn er á þaki. Lóð skilast grófjöfnuð með möl í bílaplani.
Nánari lýsing eignar:
Húsið er skráð 175,7 fermetrar samkvæmt fasteignamati og bílskúr er 41 fermetrar þar af. Húsið selst tilbúið að utan og fokhelt að innan samkvæmt nánari skilalýsingu byggingaraðila.
Íbúðin telur samkvæmt teikningu:
Forstofu, alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu, eldhús og sjónvarpsholi. Fjögur svefnherbergi eru í húsinu, baðherbergi, þvottahús og bílskúr þar sem hægt er að setja upp geymslu eða auka herbergi.
Hér er um að ræða vel skipulagt parhús sem er staðsett í göngufæri við nýjasta leikskóla bæjarins.
Áættluð afhending er 01.október 2022
Mjög góð eign á þessum eftirsótta stað og kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja vinna sér í haginn með því að kaupa fokhelt hús þar sem börnin geta gengið til og frá skóla á örfáum mínútum. Nánari upplýsingar veitir:Snorri Sigurðarson, löggiltur fasteigna og skipasali,
[email protected] Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskildu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.
www.heimaland.is, Brúarstræti 2, 2. hæð, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.